Þjóðskrá20. desember 2018

Útgáfuáætlun frétta 2019

Þjóðskrá Íslands hefur birt útgáfuáætlun frétta fyrir árið 2019

Þjóðskrá Íslands hefur birt útgáfuáætlun frétta fyrir árið 2019. Þar má sjá yfirlit yfir fréttir með upplýsingum úr fasteignaskrá og almannaskrá sem áætlað er að birta á komandi ári auk frétta um aðra starfsemi sem fer fram hjá Þjóðskrá Íslands. 

Reglulegar fréttir fyrir árið 2019 eru áætlaðar 150 talsins en voru 105 á árinu 2018. Helstu breytingar felast í fleiri fréttum úr almannaskrá auk þess sem helstu skýrslur eru dagsettar í útgáfuáætlun. Þessu til viðbótar birtir Þjóðskrá Íslands fréttir úr starfsemi stofnunarinnar eftir því sem við á hverju sinni.

Útgáfuáætlunin er birt með fyrirvara um breytingar.

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar