Þjóðskrá31. desember 2018

Fasteignamarkaðurinn árið 2018

Um 12.500 kaupsamningum var þinglýst árið 2018 á landinu öllu og námu heildarviðskipti með fasteignir um 550 milljörðum króna. Meðalupphæð á hvern samning var um 44 milljónir króna. Til samanburðar má sjá að árið 2017 var veltan rúmlega 507 milljarðar, kaupsamningar 12.108 og meðalupphæð hvers samnings um 42 milljónir króna. Heildarvelta fasteignaviðskipta hefur því aukist um tæplega 8,5% frá árinu 2017 og kaupsamningum fjölgað um rúmlega 3,2%.

Sé litið til höfuðborgarsvæðisins stefnir heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga í um 405 milljarða króna, kaupsamningar verða um 7.900 og meðalupphæð kaupsamnings verður um 51 milljón króna. Heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2017 var 372 milljarðar króna og fjöldi kaupsamninga var 7.418. Meðalupphæð samninga árið 2017 var um 50 milljónir króna. Heildarvelta á höfuðborgarsvæðinu hefur því aukist um rúmlega 8,9% og fjöldi kaupsamninga hefur aukist um tæplega 6,5%.

Smelltu hér ef þú vilt skoða tímaraðir með veltu og fjölda kaupsamninga. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið "Save target/link as" og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar