Þjóðskrá08. janúar 2019

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í desember 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember 2018 var 446. Heildarvelta nam 23,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 15,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 5,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,9 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember 2018 var 446. Heildarvelta nam 23,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 15,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 5,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,9 milljörðum króna.

Þegar desember 2018 er borinn saman við nóvember 2018 fækkar kaupsamningum um 38,6% og velta minnkar um 40,5%. Í nóvember 2018 var 726 kaupsamningum þinglýst, velta nam 39,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 53,9 milljónir króna.

Þegar desember 2018 er borinn saman við desember 2017 fækkar kaupsamningum um 27,9% og velta minnkar um 20,3%. Í desember 2017 var 619 kaupsamningum þinglýst, velta nam 29,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 47,2 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 8 í desember 2018 eða 1,9% af öllum samningum. Í nóvember 2018 voru makaskiptasamningar 16 eða 2,3% af öllum samningum. Í desember 2017 voru makaskiptasamningar 7 eða 1,2% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á nóvember 2018 og desember 2018

Nóvember 2018

Desember 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

25.764

563

15.627

336

-39,3%

-40,3%

Sérbýli

10.539

140

5.785

77

-45,1%

-45,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.795

23

1.866

33

-33,2%

43,5%

Samtals

39.098

726

23.278

446

-40,5%

-38,6%

 

Tafla 2. Samanburður á desember 2017 og desember 2018

Desember 2017

Desember 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

20.625

478

15.627

336

-24,2%

-29,7%

Sérbýli

7.107

100

5.785

77

-18,6%

-23,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.461

41

1.866

33

27,7%

-19,5%

Samtals

29.194

619

23.278

446

-20,3%

-27,9%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Desember 2017
Nóvember 2018
Desember 2018
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
578
703
413
-28,5%
-41,3%
Makaskipti eða lausafé
8
16
9
12,5%
-43,8%
Makaskipti
7
16
8
14,3%
-50%
Lausafé
1
0
1
-
-
Hlutfall makaskipta
1,2%
2,3%
1,9%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar