Þjóðskrá15. janúar 2019

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í janúar 2019

Alls voru 44.276 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. janúar sl. og hefur þeim fjölgað um 6.465 manns frá 1. desember 2017 og 120 frá 1. desember sl.

Alls voru 44.276 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. janúar sl. og hefur þeim fjölgað um 6.465 manns frá 1. desember 2017 og 120 frá 1. desember sl.  Þessar tölur eru byggðar á skráningu úr þjóðskrá á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir skráðu ríkisfangi.

Flestir erlendir ríkisborgarar eru frá Póllandi

Flestir erlendir ríkisborgarar eru frá Póllandi eða 19.269 og 4.093 einstaklingar eru með litháískt ríkisfang.

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 79 á síðastliðnum mánuði en litháískum ríkisborgurum fækkaði um 1 einstakling á sama tímabili.  

Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað um 67,6% á þremur árum

Frá 1. desember 2015 til 1. desember 2018 hefur erlendum ríkisborgurum sem eru skráðir til heimilis hér á landi fjölgað úr 26.387 í 44.156 manns. Þetta er fjölgun sem nemur  67,6%.  Á sama tímabili hefur hlutfall landsmanna með erlent ríkisfang aukist úr 7,9% í 12,4%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2017 og 2018 og þann 1. janúar sl. 

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar