Þjóðskrá22. janúar 2019

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í desember 2018

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í desember 2018 var 47 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.632 milljónir króna.

Þar af voru 22 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.437 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 746 milljónir króna.

Á sama tíma var 38 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 3.445 milljónir króna.

Þar af var 14 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 824 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 788 milljónir króna.

Mynd sýnir samanburð á kaupverði og fasteignamati atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu m.v. skráningu í kaupskrá síðastliðna 12 mánuði:

Kaupverð og fasteignaverð á atvinnuhúsnæði síðastliðna 12 mánuði eins og skráð í Kaupskrá ÞÍ

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar