Þjóðskrá06. febrúar 2019

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í febrúar 2019

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 139 manns síðastliðna tvo mánuði. Þann 1. febrúar sl. voru 232.533 einstaklingar skráðir í Þjóðkirkjuna miðað við 232.672 þann 1. desember sl.

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 139 manns síðastliðna tvo mánuði. Þann 1. febrúar sl. voru 232.533 einstaklingar skráðir í  Þjóðkirkjuna miðað við 232.672 þann 1. desember sl.  

Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum og Ásatrúarfélaginu

Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 120 manns eða um 0,9% og í Siðmennt um 64 manns eða um 2,3%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 59 manns sem er 1,3%. 
Þess má geta að mest hlutfallsleg aukning var í Stofnun múslima á Íslandi eða um 9,4%  sem er fjölgun um 18 meðlimi en í dag eru 209 félagar skráðir í trúfélagið.

Fjölgar hjá þeim sem eru utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 24.982 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. febrúar sl. og fjölgaði þeim um 219 frá 1. desember 2018 eða um 0,9%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. febrúar sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018. 

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar