Þjóðskrá20. febrúar 2019

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í janúar 2019

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 193,7 stig í janúar 2019 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,7% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu síðastliðna 12 mánuði

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 193,7 stig í janúar 2019 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,7% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali. Einnig er hægt að nálgast gögnin á myndrænan hátt.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í janúar 2019.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 727 samningar, sem þinglýst var í janúar 2019. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í janúar 2019 eru því unnar upp úr 548 leigusamningum sem þinglýst var í janúar 2019.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í janúar 2019 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4513

3091

2844

2452

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

4033

2965

2723

1764

Kópavogur

-

2885

2536

2162

Garðabær og Hafnarfjörður

4298

3004

2233

2097

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

4111

2607

2466

2205

Breiðholt

5802

2756

2387

2414

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

2489

2120

Suðurnes

-

2644

1965

1546

Vesturland

-

1593

1642

1713

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

1355

1030

Akureyri

-

2277

1954

1570

Austurland

-

-

1449

1353

Suðurland

-

1824

1778

1294

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar