Þjóðskrá21. febrúar 2019

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðar í janúar 2019

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 136 einstaklingar til hjúskapar í janúar sl. en 108 einstaklingar skildu.

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 136 einstaklingar til hjúskapar í janúar sl. en 108 einstaklingar skildu.

Hjúskapur

Af þeim 136 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í síðasta mánuði gengu 66 í hjúskap hjá sýslumanni (49%), 50 giftu sig í þjóðkirkjunni (37%), 18 einstaklingar gengu í hjúskap í trúfélagi utan þjóðkirkju (13%) og 2 einstaklingar giftu sig erlendis.
Alls gengu 3.959 einstaklingar sem eru skráðir í þjóðskrá í hjónaband á síðasta ári samanborið við 3.941  á árinu 2017. 

Skilnaðir

Alls skildu 108 einstaklingar í janúar sl. Gengu 106 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni og tveir fyrir dómi.
Á síðasta ári skildu 1.281 einstaklingur samanborið við 1.375 á árinu 2017. 

Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2018. 



Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar