Þjóðskrá26. febrúar 2019

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í janúar 2019

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

 

Kaupverð og fasteignaverð á atvinnuhúsnæði síðastliðna 12 mánuði eins og skráð í Kaupskrá ÞÍ

Mynd sýnir samanburð á kaupverði og fasteignamati atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu m.v. skráningu í kaupskrá síðastliðna 12 mánuði

 

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í janúar 2019 var 102 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 11.643 milljónir króna.

Þar af voru 76  kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 6.883 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 5.029 milljónir króna.

Á sama tíma var 78 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.274 milljónir króna.

Þar af voru 14 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.896 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.254 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar