Þjóðskrá01. mars 2019

Innskráningarþjónusta Ísland.is og Íslyklar í febrúar 2019 - 2

Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 25 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega.

 Fjöldi innskráninga gegnum innskráningarþjónustu Ísland.is

Myndin sýnir fjölda innskráninga gegnum innskráningarþjónustu Ísland.is

 

Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 25 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega. Í febrúar 2019 voru samtals 792.930 innskráningar. Í febrúar 2018 voru innskráningar samtals 567.580 og fjölgar því innskráningum um 40% frá sama tíma í fyrra. Samtals hafa 8.210.460 innskráningar verið skráðar síðastliðna 12 mánuði.

Íslykill er hluti af innskráningarþjónustu Ísland.is en þar er líka hægt að nota rafræn skilríki í síma og á kortum. Þann 1. mars 2019 höfðu verið gefnir út 272.589 Íslyklar til einstaklinga og 15.410 til fyrirtækja. Hlutfallsleg notkun innskráningarleiða síðastliðinn mánuð er: Íslykill 43,1%, rafræn skilríki á korti 0,36% og rafræn skilríki í farsíma 56,1%.

Hægt er að nálgast ofangreindar upplýsingar í meðfylgjandi Excel skjali.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar