Þjóðskrá06. mars 2019

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í mars 2019

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 162 manns síðastliðna þrjá mánuði. Þann 1. mars sl. voru 232.510 einstaklingar skráðir í Þjóðkirkjuna miðað við 232.672 þann 1. desember sl.

Trúfélagsbreytingar frá 1. des 2018

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 162 manns síðastliðna þrjá mánuði. Þann 1. mars sl. voru 232.510 einstaklingar skráðir í  Þjóðkirkjuna miðað við 232.672 þann 1. desember sl.  

Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum, Siðmennt og Ásatrúarfélaginu
Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 189 manns eða um 1,4% og í Siðmennt um 91 mann eða um 3,2%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 86 manns sem er 1,9%. 
Þess má geta að mest hlutfallsleg aukning var í Stofnun múslima á Íslandi eða um 12%  sem er fjölgun um 23 meðlimi en í dag eru 214 félagar skráðir í trúfélagið.

Fjölgar hjá þeim sem eru utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 25.068 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. mars sl. og fjölgaði þeim um 305 frá 1. desember 2018 eða um 1,2%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. mars sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.  

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar