Þjóðskrá01. apríl 2019

Innskráningarþjónusta Ísland.is og Íslyklar í mars 2019

Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 25 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega.

Mynd sem sýnir tímaröð fyrir innskráningar á Ísland.is

Myndin sýnir fjölda innskráninga gegnum innskráningarþjónustu Ísland.is

Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 25 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega. Í mars 2019 voru samtals 943.307 innskráningar. Í mars 2018 voru innskráningar samtals 597.267 og fjölgar því innskráningum um 58% frá sama tíma í fyrra. Samtals hafa 8.556.500 innskráningar verið skráðar síðastliðna 12 mánuði.

Íslykill er hluti af innskráningarþjónustu Ísland.is en þar er líka hægt að nota rafræn skilríki í síma og á kortum. Þann 1. mars 2019 höfðu verið gefnir út 274.703 Íslyklar til einstaklinga og 15.835 til fyrirtækja. Hlutfallsleg notkun innskráningarleiða síðastliðinn mánuð er: Íslykill 38,6%, rafræn skilríki á korti 0,36% og rafræn skilríki í farsíma 60,7%.

Hægt er að nálgast ofangreindar upplýsingar í meðfylgjandi Excel skjali.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar