Þjóðskrá03. apríl 2019

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í apríl 2019

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 369 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. apríl. Nú eru 232.303 einstaklingar skráðir í Þjóðkirkjuna.

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 369 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. apríl.  Nú eru 232.303 einstaklingar skráðir í  Þjóðkirkjuna.

Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum, Siðmennt og Ásatrúarfélaginu

Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 246 manns eða um 1,8% og í Siðmennt um 128 manns eða um 4,5%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 105 manns sem er 2,4%. 

Þess má geta að mest hlutfallsleg aukning var í Stofnun múslima á Íslandi eða um 13,6%  sem er fjölgun um 26 meðlimi en í dag eru 217 félagar skráðir í trúfélagið.

Fjölgar hjá þeim sem eru utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 25.137 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. apríl sl. og fjölgaði þeim um 374 frá 1. desember 2018 um 1,5%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. apríl sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.

 

Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu í þjóðskrá.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar