Þjóðskrá17. apríl 2019

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í mars 2019

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 195,4 stig í mars 2019 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,7%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Mynd sem sýnir þróun vísitölu leiguverðs síðastliðna 12 mánuði

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 195,4 stig í mars 2019 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,7%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjaliEinnig er hægt að nálgast gögnin á myndrænan hátt.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í mars 2019.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 622 samningar, sem þinglýst var í mars 2019. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í mars 2019 eru því unnar upp úr 447 leigusamningum sem þinglýst var í mars 2019.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í mars 2019 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4176

3473

2750

2352

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3561

2879

2731

2449

Kópavogur

-

3054

2397

2210

Garðabær og Hafnarfjörður

-

3044

4065

2052

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

3669

2993

2663

2179

Breiðholt

-

2783

2531

2267

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2566

2316

2288

Suðurnes

-

2510

1780

1577

Vesturland

-

2076

1844

1778

Vestfirðir

-

1588

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

1523

1761

973

Akureyri

3297

2186

2081

1509

Austurland

-

1450

1397

-

Suðurland

-

2004

1884

1314

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks, upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. Einnig er hægt að nálgast sömu gögn á myndrænan hátt.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar