Þjóðskrá23. apríl 2019

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í apríl 2019

Alls voru 45.518 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. apríl 2019. og hefur þeim fjölgað um 974 frá 1. desember 2018.

Alls voru 45.518 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. apríl 2019. og hefur þeim fjölgað um 1.362 frá 1. desember 2018.

Flestir erlendir ríkisborgarar eru frá Póllandi

Flestir erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 19.564 og 4.281 einstaklingar eru með litháískt ríkisfang. Alls eru 43% af öllum erlendum ríkisborgurum sem búsettir eru hér á landi pólskir. 

Pólskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 374 frá 1. desember 2018 og litháískum ríkisborgurum fjölgaði um 187 á sama tímabili.  

Hlutfall íbúa með erlent ríkisfang hefur aukist frá 1. desember 2017 úr 10,9% af heildar íbúafjölda landsins í 12,7%. 

Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað um 20,4% á meðan íslenskum ríkisborgurum sem búsettir eru hér á landi fjölgaði um 0,9% frá 1. desember 2017. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2017, 1. desember 2018 og þann 1. apríl 2019. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu úr þjóðskrá á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar