Þjóðskrá24. apríl 2019

Skráning fæddra, látinna og flutningur innflytjenda til landsins

Alls voru skráðir 1.013 nýfæddir einstaklingar á 1. ársfjórðungi ársins, 1.402 nýskráðir erlendir ríkisborgarar og 48 nýskráðir Íslendingar en það eru íslensk börn sem fædd eru erlendis.

Alls voru skráðir 1.013 nýfæddir einstaklingar á 1. ársfjórðungi ársins, 1.402 nýskráðir erlendir ríkisborgarar og 48 nýskráðir Íslendingar en það eru íslensk börn sem fædd eru erlendis.  Alls var tilkynnt um 563 andlát.

Á síðasta ári voru 4.208 nýfæddir einstaklingar skráðir í þjóðskrá og 10.290 skráningar erlendra ríkisborgara. Á árinu 2017 voru 4.038 skráningar nýfæddra einstaklinga sem gerir aukningu milli ára upp á tæp 4,2%. Hins vegar var samdráttur í skráningu erlendra ríkisborgara milli ára en á árinu 2017 voru 10.515 erlendir ríkisborgarar skráðir í þjóðskrá og er því samdráttur milli ára um 2,1%.

Hér má sjá fjölda breytinga eftir helstu flokkum eftir ársfjórðungi sl. þrjú ár.

Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

 

 

 

 

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar