Þjóðskrá02. maí 2019

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - maí 2019

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 727 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. maí sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á 0,6%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Kópavogur með 386 íbúa eða 1,0% fjölgun og Mosfellsbær með 287 íbúa eða 2,5% fjölgun.

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 727 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. maí sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á  0,6%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Kópavogur með 386 íbúa eða 1,0% fjölgun og Mosfellsbær með 287 íbúa eða 2,5% fjölgun. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Skorradalshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Skorradalshrepps hlutfallslega mest eða um 12,1% en íbúum þar fjölgaði um sjö íbúa eða úr 58 í 65 íbúa.  
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Árneshreppi, um 5,0% og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi um 4,4%. 
Þá fækkaði íbúum í 22 af 72 sveitarfélögum landsins síðan  frá 1. desember sl. 

Íbúum fækkar lítillega á Norðurlandi vestra 

Lítilleg fækkun hefur orðið á Norðurlandi vestra frá 1. desember sl. eða um 12 manns (-0,2%). 
Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi, þar fjölgaði um 366 íbúa eða 1,2%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 1.685 íbúa eða 0,7% og íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 247 íbúa eða 0,9%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. maí sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.     

Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu í þjóðskrár Íslands.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar