Þjóðskrá13. maí 2019

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2019

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu var rúmir 410 milljarðar síðastliðna 12 mánuði.

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu undanfarna 13 mánuði

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu var rúmir 410 milljarðar síðastliðna 12 mánuði.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2019 var 540. Heildarvelta nam 28,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 20,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 6,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,7 milljörðum króna.

Þegar apríl 2019 er borinn saman við mars 2019 fækkar kaupsamningum um 8,5% og velta minnkar um 11,9%. Í mars 2019 var 590 kaupsamningum þinglýst, velta nam 31,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 54 milljónir króna.

Þegar apríl 2019 er borinn saman við apríl 2018 fækkar kaupsamningum um 15% og velta minnkar um 14,2%. Í apríl 2018 var 635 kaupsamningum þinglýst, velta nam 32,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 51,5 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 13 í apríl 2019 eða 2,5% af öllum samningum. Í mars 2019 voru makaskiptasamningar 10 eða 1,8% af öllum samningum. Í apríl 2018 voru makaskiptasamningar 8 eða 1,3% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á mars 2019 og apríl 2019

Mars 2019

Apríl 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

20.142

444

20.583

436

2,2%

-1,8%

Sérbýli

8.753

113

6.755

87

-22,8%

-23,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.975

33

738

17

-75,2%

-48,5%

Samtals

31.870

590

28.077

540

-11,9%

-8,5%

 

Tafla 2. Samanburður á apríl 2018 og apríl 2019

Apríl 2018

Apríl 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.718

503

20.583

436

-9,4%

-13,3%

Sérbýli

6.680

97

6.755

87

1,1%

-10,3%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.317

35

738

17

-77,7%

-51,4%

Samtals

32.715

635

28.077

540

-14,2%

-15,0%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Apríl 2018
Mars 2019
Apríl 2019
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
600
557
523
-12,8%
-6,1%
Makaskipti eða lausafé
8
12
13
62,5%
8,3%
Makaskipti
8
10
13
62,5%
30%
Lausafé
0
2
0
-
-
Hlutfall makaskipta
1,3%
1,8%
2,5%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar