Þjóðskrá20. maí 2019

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðar í apríl 2019

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 157 einstaklingar til hjúskapar í apríl sl. en 87 einstaklingar skildu.

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 157 einstaklingar til hjúskapar í apríl sl. en 87 einstaklingar skildu.

Hjúskapur

Af þeim 157 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í síðasta mánuði gengu 88 í hjúskap hjá sýslumanni eða 56,1%, 48 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 30,1% og 18 einstaklingar gengu í hjúskap í trúfélagi utan þjóðkirkju eða 11,5%.

Skilnaðir

Alls skildu 87 einstaklingar í aprílmánuði. Gengu 79 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni, 4 gengu frá lögskilnaði fyrir dómstólum og 4 skildu í útlöndum. 

Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2019. 

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar til Þjóðskrár Íslands.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar