Þjóðskrá21. maí 2019

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2019

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 622,3 stig í apríl 2019 (janúar 1994=100) og hækkar um 0,3% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,1%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 3,9%.

Mynd sem sýnir þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðna 12 mánuði

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 622,3 stig í apríl 2019  (janúar 1994=100) og hækkar um 0,3% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,1%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 3,9%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.

Ef þú vilt skoða tímaröð fyrir vísitöluna, þá getur þú smellt hér til að skoðað gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir maí 2019 verður birt 19. júní n.k.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar