Þjóðskrá03. júní 2019

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - júní 2019

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 908 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. júní sl.

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 908 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. júní sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á  0,7%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Kópavogur með 410 íbúa eða 1,1% fjölgun og Mosfellsbær með 287 íbúa eða 2,5% fjölgun. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Skagabyggð

Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Skagabyggðar hlutfallslega mest eða um 8,0% en íbúum þar fjölgaði um sjö íbúa eða úr 88 í 95 íbúa.  
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi, um 6,0% og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi um 5,5%. 

Þá fækkaði íbúum í 23 af 72 sveitarfélögum landsins síðan  frá 1. desember sl. 

Fjölgar í öllum landshlutum nema Vestfjörðum þar stendur íbúafjöldinn í stað

Lítilsháttar fjölgun hefur orðið í öllum landshlutum frá 1. desember sl. nema á Vestfjörðum þar sem fjöldi búsettra stendur í stað. 
Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi, þar fjölgaði um 490 íbúa eða 1,7%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 1.989 íbúa eða 0,9% og íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 247 íbúa eða 0,9%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. maí sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.   

Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu í þjóðskrá.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar