Þjóðskrá18. júní 2019

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í júní 2019

Alls voru 46.171 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. júní 2019 og hefur þeim fjölgað um 2.015 frá 1. desember 2018.

Alls voru 46.171 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. júní 2019  og hefur þeim fjölgað um 2.015 frá 1. desember 2018.

Flestir erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 19.743 og 4.331 einstaklingar eru með litháískt ríkisfang. 

Pólskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 553 frá 1. desember 2018 og litháískum ríkisborgurum fjölgaði um 237 á sama tímabili.  

Hlutfall íbúa með erlent ríkisfang hefur aukist frá 1. desember 2017 úr 10,9% af heildar íbúafjölda landsins í 12,8%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2017, 1. desember 2018 og þann 1. maí 2019. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu úr þjóðskrá á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar