Þjóðskrá04. júlí 2019

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í júní 2019

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júní 2019 var 496. Heildarvelta nam 29,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 59 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 18,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 6,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 4,7 milljörðum króna.

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu undanfarna 13 mánuði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júní 2019 var 496. Heildarvelta nam 29,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 59 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 18,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 6,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 4,7 milljörðum króna.

Þegar júní 2019 er borinn saman við maí 2019 fækkar kaupsamningum um 20,4% og velta minnkar um 9,7%. Í maí 2019 var 623 kaupsamningum þinglýst, velta nam 32,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 52 milljónir króna.

Þegar júní 2019 er borinn saman við júní 2018 fækkar kaupsamningum um 23,8% og velta minnkar um 11,2%. Í júní 2018 var 651 kaupsamningi þinglýst, velta nam 33 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 50,6 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 8 í júní 2019 eða 1,7% af öllum samningum. Í maí 2019 voru makaskiptasamningar 10 eða 1,7% af öllum samningum. Í júní 2018 voru makaskiptasamningar 4 eða 0,6% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á maí 2019 og júní 2019


Maí 2019

Júní 2019

Breyting


Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.641

483

18.124

395

-19,9%

-18,2%

Sérbýli

8.239

108

6.461

86

-21,6%

-20,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.542

32

4.689

15

204,1%

-53,1%

Samtals

32.422

623

29.275

496

-9,7%

-20,4%

 

Tafla 2. Samanburður á júní 2018 og júní 2019


Júní 2018

Júní 2019

Breyting


Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.944

513

18.124

395

-21,0%

-23,0%

Sérbýli

8.448

113

6.461

86

-23,5%

-23,9%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.561

25

4.689

15

200,3%

-40,0%

Samtals

32.954

651

29.275

496

-11,2%

-23,8%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Júní 2018
Maí 2019
Júní 2019
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
627
591
481
-23,3%
-18,6%
Makaskipti eða lausafé
4
10
9
125%
-10%
Makaskipti
4
10
8
100%
-20%
Lausafé
0
0
1
-
-
Hlutfall makaskipta
0,6%
1,7%
1,7%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar