Þjóðskrá16. júlí 2019

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í júlí 2019

Alls voru 46.717 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. júlí 2019 og hefur þeim fjölgað um 2.561 frá 1. desember 2018 eða um 5,8%.

Alls voru 46.717 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. júlí 2019 og hefur þeim fjölgað um 2.561 frá 1. desember 2018 eða um 5,8%. Á sama tíma fjölgaði

íslenskum ríkisborgurum sem eru búsettir hér á landi um 0,4%.

Flestir erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 19.909 og 4.388 einstaklingar eru með litháískt ríkisfang.

Pólskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 3,7% frá 1. desember sl. eða um 719 frá 1. desember 2018 og litháískum ríkisborgurum fjölgaði um 7,2% eða um 294 á sama tímabili. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2017, 1. desember 2018 og þann 1. júlí 2019.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar