Þjóðskrá16. júlí 2019

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðar í júní 2019

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 362 einstaklingar til hjúskapar í júní sl. en 111 einstaklingar skildu.

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 362 einstaklingar til hjúskapar í júní sl. en 111 einstaklingar skildu.

Hjúskapur

Af þeim 362 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í síðasta mánuði gengu 116 í hjúskap hjá sýslumanni eða 32,0%, 190 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 52,5%, og 36 einstaklingar gengu í hjúskap í öðru trúfélagi eða 9,9% og loks gengu 20 einstaklingar í hjúskap erlendis.

Skilnaðir

Alls skildu 111 einstaklingar í aprílmánuði. Gengu 108 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni og 3 gengu frá lögskilnaði erlendis.

Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2019.

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar til Þjóðskrár Íslands.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar