Þjóðskrá07. ágúst 2019

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í ágúst 2019

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 632 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. ágúst. Nú eru 232.040 einstaklingar skráðir í Þjóðkirkjuna.

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 632 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. ágúst.  Nú eru 232.040 einstaklingar skráðir í  Þjóðkirkjuna.

Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum

Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 437 manns eða um 3,1% og í Siðmennt um 320 manns eða um 11,4,%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 196 manns sem er 4,4% fjölgun.

Alls voru 25.512 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. ágúst sl. og fjölgaði þeim um 749 frá 1. desember 2018 eða um 3,0%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. ágúst sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.

 

Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 

 

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar