Þjóðskrá07. ágúst 2019

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2019

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2019 var 638. Heildarvelta nam 32,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3 milljörðum króna.

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu undanfarna 13 mánuði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2019 var 638. Heildarvelta nam 32,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3 milljörðum króna.

Þegar júlí 2019 er borinn saman við júní 2019 fjölgar kaupsamningum um 28,6% og velta eykst um 12,2%. Í júní 2019 var 496 kaupsamningum þinglýst, velta nam 29,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 59 milljónir króna.

Þegar júlí 2019 er borinn saman við júlí 2018 fækkar kaupsamningum um 2,6% og velta minnkar um 2,2%. Í júlí 2018 var 655 kaupsamningum þinglýst, velta nam 33,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 51 milljón króna.

Makaskiptasamningar voru 18 í júlí 2019 eða 3% af öllum samningum. Í júní 2019 voru makaskiptasamningar 8 eða 1,7% af öllum samningum. Í júlí 2018 voru makaskiptasamningar 7 eða 1,1% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á júní 2019 og júlí 2019


Júní 2019

Júlí 2019

Breyting


Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

18.124

395

22.044

499

21,6%

26,3%

Sérbýli

6.461

86

7.797

102

20,7%

18,6%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

4.689

15

3.018

37

-35,6%

146,7%

Samtals

29.275

496

32.858

638

12,2%

28,6%

 

Tafla 2. Samanburður á júlí 2018 og júní 2019


Júlí 2018

Júlí 2019

Breyting


Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.581

511

22.044

499

-2,4%

-2,3%

Sérbýli

9.344

121

7.797

102

-16,6%

-15,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.683

23

3.018

37

79,3%

60,9%

Samtals

33.608

655

32.858

638

-2,2%

-2,6%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Júlí 2018
Júní 2019
Júlí 2019
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
632
481
601
-4,9%
24,9%
Makaskipti eða lausafé
8
9
18
125,0%
100,0%
Makaskipti
7
8
18
157,1%
125,0%
Lausafé
1
1
0
-
-
Hlutfall makaskipta
1,1%
1,7%
3,0%
-
-

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar