Þjóðskrá20. ágúst 2019

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í ágúst 2019

Alls voru 47.304 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. ágúst 2019 og hefur þeim fjölgað um 3.148 frá 1. desember 2018 eða um 7,1%.

Alls voru 47.304 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. ágúst 2019 og hefur þeim fjölgað um 3.148 frá 1. desember 2018 eða um 7,1%. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru búsettir hér á landi um 0,5%.

Pólskir ríkisborgarar búnir að rjúfa 20 þúsund íbúa múrinn!

Flestir erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 20.146 og 4.455 einstaklingar eru með litháískt ríkisfang.

Pólskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 5,0% frá 1. desember sl. eða um 956 frá 1. desember 2018 og litháískum ríkisborgurum fjölgaði um 8,8% eða um 361 á sama tímabili. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2017, 1. desember 2018 og þann 1. ágúst  2019.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar