Þjóðskrá20. ágúst 2019

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðar í júlí 2019

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 484 einstaklingar til hjúskapar í júlí sl. en 130 einstaklingar skildu.

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 484 einstaklingar til hjúskapar í júlí sl. en 130 einstaklingar skildu.

Hjúskapur

Af þeim 484 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í síðasta mánuði gengu 144 í hjúskap hjá sýslumanni eða 29,8%, 240 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 49,6%, og 82

einstaklingar gengu í hjúskap í öðru trúfélagi eða 16,9% og loks gengu 18 einstaklingar í hjúskap erlendis.

Skilnaðir

Alls skildu 130 einstaklingar í júlímánuði. Gengu 126 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni og 4 gengu frá lögskilnaði fyrir dómstólum.

Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2019.

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar til Þjóðskrár Íslands.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar