Þjóðskrá27. ágúst 2019

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í júlí 2019

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

 Kaupverð og fasteignaverð á atvinnuhúsnæði síðastliðna 12 mánuði eins og skráð í Kaupskrá ÞÍ

Mynd sýnir samanburð á kaupverði og fasteignamati atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu m.v. skráningu í kaupskrá síðastliðna 12 mánuði

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í júlí 2019 var 45 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 6.351 milljón króna.

Þar af voru 29  kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.380 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.580 milljónir króna.

Á sama tíma var 48 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 770 milljónir króna.

Þar af voru 22 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 517 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 312 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar