Þjóðskrá02. september 2019

Innskráningarþjónusta Ísland.is og Íslyklar í ágúst 2019

Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 25 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega.

Mynd sem sýnir tímaröð fyrir innskráningar á Ísland.is

Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 25 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega. Í ágúst 2019 voru samtals 1.501.749 innskráningar. Í ágúst 2018 voru innskráningar samtals 766.177 og fjölgar því innskráningum um 96% frá sama tíma í fyrra. Samtals hafa 10.251.664 innskráningar verið skráðar síðastliðna 12 mánuði.

Íslykill er hluti af innskráningarþjónustu Ísland.is en þar er líka hægt að nota rafræn skilríki í síma og á kortum. Þann 2. september 2019 höfðu verið gefnir út 287.952 Íslyklar til einstaklinga og 17.467 til fyrirtækja. Hlutfallsleg notkun innskráningarleiða síðastliðinn mánuð er: Íslykill 39,10%, rafræn skilríki á korti 0,24% og rafræn skilríki í farsíma 60,28%.

Hægt er að nálgast ofangreindar upplýsingar í meðfylgjandi excel skjali.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar