Þjóðskrá04. september 2019

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2019

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2019 var 525. Heildarvelta nam 27,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52,1 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 19,2 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,7 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2019 var 525. Heildarvelta nam 27,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52,1 milljón krónur. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 19,2 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,7 milljörðum króna.

Þegar ágúst 2019 er borinn saman við júlí 2019 fækkar kaupsamningum um 17,7% og velta minnkar um 16,7%. Í júlí 2019 var 638 kaupsamningum þinglýst, velta nam 32,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 51,5 milljónir króna.

Þegar ágúst 2019 er borinn saman við ágúst 2018 fækkar kaupsamningum um 32,7% og velta minnkar um 27,8%. Í ágúst 2018 var 780 kaupsamningum þinglýst, velta nam 37,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 48,6 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á júlí 2019 og ágúst 2019

Júlí 2019

Ágúst 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.044

499

19.211

412

-12,9%

-17,4%

Sérbýli

7.797

102

7.497

96

-3,8%

-5,9%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.018

37

658

17

-78,2%

-54,1%

Samtals

32.858

638

27.366

525

-16,7%

-17,7%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á ágúst 2018 og ágúst 2019

Ágúst 2018

Ágúst 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

25.581

604

19.211

412

-24,9%

-31,8%

Sérbýli

9.417

124

7.497

96

-20,4%

-22,6%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.898

52

658

17

-77,3%

-67,3%

Samtals

37.896

780

27.366

525

-27,8%

-32,7%

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar