Þjóðskrá09. október 2019

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í september 2019

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2019 var 708. Heildarvelta nam 37,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 53,3 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 26,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 2,2 milljörðum króna.

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu undanfarna 13 mánuði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2019 var 708. Heildarvelta nam 37,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 53,3 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 26,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 2,2 milljörðum króna.

Þegar september 2019 er borinn saman við ágúst 2019 fjölgar kaupsamningum um 34,9% og velta eykst um 37,9%. Í ágúst 2019 var 525 kaupsamningum þinglýst, velta nam 27,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 52,1 milljón króna.

Þegar september 2019 er borinn saman við september 2018 fjölgar kaupsamningum um 0,1% og velta eykst um 4,8%. Í september 2018 var 707 kaupsamningum þinglýst, velta nam 36 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 51 milljón króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á ágúst 2019 og september 2019

Ágúst 2019

September 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

19.211

412

26.426

557

37,6%

35,2%

Sérbýli

7.497

96

9.102

120

21,4%

25,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

658

17

2.216

31

236,9%

82,4%

Samtals

27.366

525

37.744

708

37,9%

34,9%

 

Tafla 2. Samanburður á september 2018 og september 2019

September 2018

September 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

23.841

543

26.426

557

10,8%

2,6%

Sérbýli

9.536

120

9.102

120

-4,5%

0,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.654

44

2.216

31

-16,5%

-29,5%

Samtals

36.031

707

37.744

708

4,8%

0,1%

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar