Þjóðskrá02. desember 2019

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - desember 2019

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 2.434 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. desember sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á ​1,9%.

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 2.434 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. desember sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á  1,9%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Kópavogur með 951 íbúa eða 2,6% fjölgun og Garðabær með 616 íbúa eða 3,8% fjölgun.

Hlutfallslega mest fjölgun í Fljótsdalshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Fljótsdalshrepps hlutfallslega mest eða um 17,8%, um 13 íbúa eða úr 73 í 86 íbúa.

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Dalabyggð, um 4,8% og í Langanesbyggð um 4,7%. Þá fækkaði íbúum í 10 af 72 sveitarfélögum landsins frá 1. desember síðastliðinn

Fjölgar í öllum landshlutum

Lítilsháttar fjölgun hefur orðið í öllum landshlutum frá 1. desember síðastliðnum.

Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi. Þar fjölgaði um 1.102 íbúa eða 3,7%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 4.831 eða 2,1% og íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 782 eða 2,9%.

Íbúum landsins hefur fjölgað um 7.208 manns eða 2,0% á ofangreindu tímabili. Þann 1. desember sl. voru 363.879 einstaklingar skráðir með búsetu hér á landi samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. desember sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.  

Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar