Þjóðskrá10. desember 2019

Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í nóvember 2019

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í nóvember 2019.

Mynd sem sýnir tímaröð yfir fjölda leigusamninga síðastliðna 13 mánuði, skipt niður á höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í nóvember 2019.

Heildarfjöldi samninga á landinu var 679 í nóvember 2019 og fækkar þeim um 16,6% frá október 2019 en fjölgar um 33,1% frá nóvember 2018.

Svæði Nóvember 2018 Október 2019 Nóvember 2019 Breyting milli ára Breyting milli mánaða
Höfuðborgarsvæðið 302 558 461 52,6% -17,4%
Suðurnes 65 83 81 24,6% -2,4%
Vesturland 28 27 29 3,6% 7,4%
Vestfirðir 15 8 14 -6,7% 75,0%
Norðurland 54 86 54 0,0% -37,2%
Austurland 12 13 6 -50,0% -53,8%
Suðurland 34 39 34 0,0% -12,8%
Samtals 510 814 679 33,1% -16,6%

Smelltu hér til að skoða tímaraðir frá árinu 2005 í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar