Þjóðskrá17. desember 2019

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í desember 2019

Alls voru 49.344 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. desember 2019 ​og hefur þeim fjölgað um 5.188 frá 1. desember 2018 eða um 11,7%. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru búsettir hér á landi um 0,6%.

Alls voru 49.344 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. desember 2019 og hefur þeim fjölgað um 5.188 frá 1. desember 2018 eða um 11,7%. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru búsettir hér á landi um 0,6%.

Langflestir erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 20.674 og 4.616 einstaklingar eru með litháískt ríkisfang.

Pólskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 7,7% frá 1. desember sl. eða um 1.484 frá 1. desember 2018 og litháískum ríkisborgurum um 522 á sama tímabili eða um 12,8%. 

Mesta hlutfallsleg fjölgun frá 1. desember sl. var hjá ríkisborgurum frá Venezuela eða um 307,7% en þeir eru í dag 159 talsins en voru þann 1. desember sl. 39.

Íbúum frá öðrum norðurlöndum hefur fækkað hér á landi. Meðal annars hefur dönskum ríkisborgurum fækkað um 3,8%, norskum ríkisborgurum um 5,7%, sænskum ríkisborgurum um 6,6% og finnskum ríkisborgurum um 2,1%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2017, 1. desember 2018 og þann 1. desember  2019.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.

 

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar