Þjóðskrá10. febrúar 2020

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í febrúar 2020

Alls voru 231.025 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. febrúar síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands.

Alls voru 231.025 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. febrúar síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.618 meðlimi og

Fríkirkjan í Reykjavík með 10.002 meðlimi.

Fjölgun mest í siðmennt 

Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 94 meðlimi.  Í Ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 74 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 129 og í zuism fækkaði um  83 meðlimi. 

Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 26.229 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. febrúar sl. eða 7,4% landsmanna. Alls eru 52.731 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða

14,5%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. febrúar sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019. 

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar