Þjóðskrá14. febrúar 2020

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2020

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2020 var 775. Heildarvelta nam 41 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52,9 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 28,2 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 4,1 milljarði króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2020 var 775. Heildarvelta nam 41 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52,9 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 28,2 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 4,1 milljarði króna.

Þegar janúar 2020 er borinn saman við desember 2019 fjölgar kaupsamningum um 39,6% og velta eykst um 29,3%. Í desember 2019 var 555 kaupsamningum þinglýst, velta nam 31,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 57,2 milljónir króna.

Þegar janúar 2020 er borinn saman við janúar 2019 fækkar kaupsamningum um 1,8% og velta minnkar um 10%. Í janúar 2019 var 789 kaupsamningum þinglýst, velta nam 45,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 57,8 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 9 í janúar 2020 eða 1,2% af öllum samningum. Í desember 2019 voru makaskiptasamningar 5 eða 1% af öllum samningum. Í janúar 2019 voru makaskiptasamningar 17 eða 2,4% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á desember 2019 og janúar 2020

Desember 2019

Janúar 2020

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

21.560

412

28.160

620

30,6%

50,5%

Sérbýli

7.883

106

8.791

113

11,5%

6,6%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.277

37

4.059

42

78,2%

13,5%

Samtals

31.720

555

41.010

775

29,3%

39,6%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á janúar 2019 og janúar 2020

Janúar 2019

Janúar 2020

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

27.283

572

28.160

620

3,2%

8,4%

Sérbýli

11.254

139

8.791

113

-21,9%

-18,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

7.044

78

4.059

42

-42,4%

-46,2%

Samtals

45.581

789

41.010

775

-10,0%

-1,8%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Janúar 2019
Desember 2019
Janúar 2020
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
711
518
733
3,1%
41,5%
Makaskipti eða lausafé
17
8
10
-41,2%
25%
Makaskipti
17
5
9
-47,1%
80%
Lausafé
0
3
1
-
-
Hlutfall makaskipta
2,4%
1%
1,2%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar