Þjóðskrá19. febrúar 2020

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í janúar 2020

Vísitala leiguverðs hækkar um 1,2% frá fyrri mánuði, en 12 mánaða hækkun er þá komin í 5,6%.

Mynd sem sýnir þróun vísitölu leiguverðs síðastliðna 12 mánuði

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 204,5 stig í janúar 2020 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,7% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,6%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.

Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í janúar 2020.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 811 samningar, sem þinglýst var í janúar 2020. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í janúar 2020 eru því unnar upp úr 595 leigusamningum sem þinglýst var í janúar 2020.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í janúar 2020 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4165

3386

2776

2580

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3944

3080

2690

2029

Kópavogur

3623

3363

2534

2101

Garðabær og Hafnarfjörður

3956

2638

2685

2320

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

4490

2806

2546

2159

Breiðholt

-

3109

2442

2388

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2763

-

2167

Suðurnes

3938

2992

1865

1490

Vesturland

-

2098

1685

1544

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

1491

1308

Akureyri

-

2161

1968

1658

Austurland

-

-

1336

-

Suðurland

2979

1974

1656

1482

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar