Þjóðskrá26. febrúar 2020

Skráning fæddra, látinna og nýskráning erlendra ríkisborgara

Alls voru skráðir 1.115 nýfæddir einstaklingar á 4. ársfjórðungi ársins, 1.287 nýskráðir erlendir ríkisborgarar og 67 nýskráðir Íslendingar en það eru íslensk börn sem fædd eru erlendis.

Alls voru skráðir 1.115 nýfæddir einstaklingar á 4. ársfjórðungi ársins, 1.287 nýskráðir erlendir ríkisborgarar og 67 nýskráðir Íslendingar en það eru íslensk börn sem fædd eru erlendis.  Alls var tilkynnt um 635 andlát.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum var á síðasta ári alls 4.431 nýfæddir einstaklingar skráðir í þjóðskrá sem er aukning frá sama tíma í fyrra um ríflega 5,3%.

Samdráttur var hins vegar í skráningu erlendra ríkisborgara. Á síðasta ári voru 7.900 erlendir ríkisborgarar skráðir til landsins en á ári þar á undan voru það 10.765. Þetta er samdráttur upp á 26,6%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda fæddra innanlands og íslenskra ríkisborgara erlendis og skráning erlendra ríkisborgara til landsins auk fjölda látinna. 

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum til Þjóðskrár Íslands. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar