Þjóðskrá05. mars 2020

Verkföll hafa áhrif á afgreiðslu vegabréfa og aðra þjónustu

Fyrirhuguð verkföll BSRB hafa fyrirsjáanleg áhrif á umsóknir og afgreiðslu vegabréfa sem og þjónustu hjá Þjóðskrá Íslands.

Vegna fyrirhugaðra verkfallsaðgerða BSRB vekur Þjóðskrá Íslands athygli á því að það mun koma til þjónustuskerðingar mánudaginn 9. mars og þriðjudaginn 10. mars ef af verkfalli verður. Sama á við um aðra daga sem verkfall hefur verið boðað.

Boðað verkfall mun hafa í för sér mikil áhrif umsóknarstaði vegabréfa. Embætti sýslumanna annast umsóknir um vegabréf hér á landi en þeir hafa boðað að almenn afgreiðsla erinda muni að mestu liggja niðri. Þetta hefur þau áhrif að afgreiðsla vegabréfa mun afmarkast af þeirri þjónustuskerðingu sem er hjá embættum sýslumanna. 

Hjá Þjóðskrá Íslands verður vottorðaframleiðsla í lágmarki vegna verkfallsins. Þjóðskrá Íslands mun jafnframt ekki geta tryggt auglýstan afhendingartíma á vegabréfum og vottorðum sem er í dag 2 virkir dagar. 
 
Opnunartími Þjóðskrár Íslands verður einnig skertur þessa daga en opið verður í afgreiðslu í Reykjavík frá 11 til 13 dagana sem verkfallið stendur yfir en lokað á Akureyri. Símaþjónusta verður einungis opin á milli 9 og 10. Bendum við viðskiptavinum á sjálfsafgreiðslu mála á www.skra.is. 

Uppfært: Boðuðu verkfalli hefur verið aflýst.


 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar