Þjóðskrá11. mars 2020

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í mars 2020

Alls voru 230.889 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. mars síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands.

Alls voru 230.889 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. mars síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.657 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.005 meðlimi.

Fjölgun mest í siðmennt

Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 132 meðlimi.  Í kaþólsku kirkjunni hefur fjölgað um 103 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 265 og í zuism fækkaði um  96 meðlimi. 

Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 26.313 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. mars sl. eða 7,2% landsmanna. Alls eru 53.117 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 14,5%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. mars sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019. 

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar