Þjóðskrá02. apríl 2020

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - apríl 2020

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 837 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. apríl sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Kópavogsbær en þar fjölgaði íbúum um 230 á sama tímabili.

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 837 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. apríl sl. Það sveitarfélag sem kemur næst er Kópavogsbær en þar fjölgaði íbúum um 230 á sama tímabili. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Hvalfjarðarsveit

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Hvalfjarðarsveitar fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fjóra mánuði eða um 7,7% en íbúum þar fjölgaði þó aðeins um 5 íbúa. 

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Svalbarðsstrandarhreppi eða um 5,0%.  Þá fækkaði íbúum í 30 sveitarfélagi af 72 á ofangreindu tímabili. 

Fækkun í tveimur landshlutum

Lítilsháttar fækkun var í tveimur landshlutum, Vestfjörðum og á Norðurlandi eystra. 

Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 1.234 og á Suðurnesjum um 255 en íbúum á Vestfjörðum fækkaði um 20 og íbúum á Norðurlandi eystra fækkaði um 47.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2018 og 2019.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. desember 2018, 1. desember 2019 og þann 1. apríl 2020.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar