Þjóðskrá22. apríl 2020

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í mars 2020

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkar um 1,1% frá fyrri mánuði.

Mynd sem sýnir þróun vísitölu leiguverðs síðastliðna 12 mánuði

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 201,8 stig í mars 2020 (janúar 2011=100) og lækkar um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 3,3%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjaliEinnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í mars 2020.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 675 samningar, sem þinglýst var í mars 2020. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í mars 2020 eru því unnar upp úr 527 leigusamningum sem þinglýst var í mars 2020.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í mars 2020 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4606

3247

2996

1963

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

4028

3081

2456

2127

Kópavogur

3932

2891

2611

2334

Garðabær og Hafnarfjörður

4549

3174

2458

2165

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

4023

2902

2512

2164

Breiðholt

3629

2948

2483

2180

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

3123

2239

2206

Suðurnes

-

2516

1799

1535

Vesturland

-

-

1845

1582

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

1344

979

Akureyri

4303

2188

1855

1730

Austurland

-

-

1649

1190

Suðurland

-

2290

1750

1699

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar