Þjóðskrá18. maí 2020

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í maí 2020

Alls voru 50.877 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. maí 2020 og fjölgaði þeim um 1.530 frá 1. desember sl.

Alls voru 50.877 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. maí 2020  og fjölgaði þeim um 1.530  frá 1. desember sl.  Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru búsettir hér á landi um 896 samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Pólskum ríkisborgurum sem búsettir eru hér á landi fjölgaði á ofannefndu tímabili um 330 einstaklinga og eru þeir 5,7% íbúa landsins.  Næst mest fjölgun var meðal rúmenskra ríkisborgara eða um 177. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2018, 1. desember 2019 og þann 1. maí 2020. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.



Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar