Þjóðskrá20. maí 2020

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í apríl 2020

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkar um 1% frá fyrri mánuði og síðastliðna 3 mánuði hefur vísitalan lækkað um 2,3%.

 

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 199,7 stig í apríl 2020 (janúar 2011=100) og lækkar um 1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 2,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 2,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjaliEinnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í apríl 2020.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 649 samningar, sem þinglýst var í apríl 2020. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í apríl 2020 eru því unnar upp úr 471 leigusamningum sem þinglýst var í apríl 2020.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í apríl 2020 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4616

3205

2979

2575

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

4345

3243

2543

2438

Kópavogur

-

3210

2455

2223

Garðabær og Hafnarfjörður

4243

2827

2295

2705

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

4443

2944

2470

2059

Breiðholt

-

2898

2242

1895

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

2187

-

Suðurnes

-

2396

1902

1462

Vesturland

-

2354

1644

1656

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

1789

-

Akureyri

-

2315

1946

1614

Austurland

-

-

-

-

Suðurland

-

2304

1749

1499

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar