Þjóðskrá29. maí 2020

Hvernig getum við einfaldað regluverk og bætt þjónustu?

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið auglýsir eftir þáttöku almennings um tillögur til að bæta þjónustu stofnana.

Í nýrri könnun á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins er óskað eftir ábendingum og tillögum um það hvernig megi bæta þjónustu og einfalda regluverk á vegum ráðuneytisins og stofnana þess. Allir eiga kost á því að taka þátt í netkönnuninni til og með 19. júní nk.

Markmiðið er að greina hvort og hvar lagðar eru óþarfar, flóknar eða óljósar byrðar á einstaklinga, fyrirtæki eða félagasamtök sem leita þurfa til ráðuneytisins eða stofnana þess.

Könnunin snýr að ráðuneytinu og sex fagstofnunum þess en þær eru: Byggðastofnun, Póst- og fjarskiptastofnun, Rannsóknarnefnd samgönguslysa, Samgöngustofa, Vegagerðin og Þjóðskrá Íslands.

„Verkefnið er eitt af stefnumálum mínum og í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að gera átak í einföldun regluverks í þágu atvinnulífs og almennings Með aðstoð almennings, fyrirtækja og stofnana viljum við bæta þjónustu stjórnsýslunnar eins og kostur er. Við leitumst meðal annars eftir ábendingum það um hvar megi auka stafræna þjónusta, einfalda ferla eða gera breytingar á lögum til einföldunar og hagræðis,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Könnunin er aðgengileg hér að neðan sem og á vef könnunarinnar.

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar