Þjóðskrá12. júní 2020

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í maí 2020

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í maí 2020 var 481. Heildarvelta nam 25,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 53,8 milljónir króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í maí 2020 var 481. Heildarvelta nam 25,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 53,8 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 19 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 6,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,5 milljörðum króna.

Þegar maí 2020 er borinn saman við apríl 2020 fjölgar kaupsamningum um 70,6% og velta eykst um 69,6%. Í apríl 2020 var 282 kaupsamningum þinglýst, velta nam 15,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 54,1 milljónir króna.

Þegar maí 2020 er borinn saman við maí 2019 fækkar kaupsamningum um 22,8% og velta minnkar um 20,2%. Í maí 2019 var 623 kaupsamningum þinglýst, velta nam 32,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 52 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 16 í maí 2020 eða 3,4% af öllum samningum. Í apríl 2020 voru makaskiptasamningar 4 eða 1,5% af öllum samningum. Í maí 2019 voru makaskiptasamningar 10 eða 1,7% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á apríl 2020 og maí 2020

Apríl 2020

Maí 2020

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

11.669

236

19.003

387

62,8%

64,0%

Sérbýli

3.044

39

6.381

80

109,6%

105,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

549

7

494

14

-9,9%

100,0%

Samtals

15.261

282

25.878

481

69,6%

70,6%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á maí 2019 og maí 2020

Maí 2019

Maí 2020

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.641

483

19.003

387

-16,1%

-19,9%

Sérbýli

8.239

108

6.381

80

-22,6%

-25,9%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.542

32

494

14

-68,0%

-56,3%

Samtals

32.422

623

25.878

481

-20,2%

-22,8%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Maí 2019
Apríl 2020
Maí 2020
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
591
275
467
-21%
69,8%
Makaskipti eða lausafé
10
4
16
60%
300%
Makaskipti
10
4
16
60%
300%
Lausafé
0
0
0
-
-
Hlutfall makaskipta
1,7%
1,5%
3,4%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar