Þjóðskrá31. ágúst 2020

Skráning fæddra, látinna og nýskráning erlendra ríkisborgara á 2. ársfjórðungi 2020

Alls voru skráðir 1.081 nýfæddir einstaklingar á 2. ársfjórðungi ársins.

 
Alls voru skráðir 1.081 nýfæddir einstaklingar á 2. ársfjórðungi ársins, 683 nýskráðir erlendir ríkis-borgarar og 63 nýskráðir Íslendingar en það eru íslensk börn sem fædd eru erlendis.  Alls var tilkynnt um 567 andlát.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum var á fyrstu sex mánuðum síðasta árs alls 2.078 nýfæddir einstaklingar skráðir í þjóðskrá samanborið við 2.161 nýfædda einstaklinga á þessari ári. Þetta er aukning um ríflega 4,0%.
Samdráttur var hins vegar í skráningu erlendra ríkisborgara fyrir sama tímabil . Á síðasta ári voru 4.487 erlendir ríkisborgarar skráðir til landsins en á fyrri hluta yfirstandandi árs voru 2.420 erlendir ríkisborgarar skráðir til landsins. 
 
Hér má sjá töflu yfir fjölda fæddra innanlands og Íslenskra ríkisborgara erlendis og skráning erlendra ríkisborgara til landsins auk fjölda látinna. 


Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum sem hafa borist til Þjóðskrár Íslands.
Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar