Þjóðskrá07. september 2020

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í september 2020

Alls voru 230.657 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. september síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands.

 

 

Alls voru 230.657 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. september síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.680 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.031 meðlimi.

Fjölgun mest í siðmennt 

Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 655 meðlimi.  Í kaþólsku kirkjunni hefur fjölgað um 620 meðlimi.  Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 1.518 og í zuism fækkaði um 375 meðlimi. 

Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 27.068 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. september sl. eða 7,3% lands-manna. Alls eru 54.703 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 14,9%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. september sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.  


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar